Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Atburðarteljari

september 08

14. september 2008 klukkan 13:10
Omægood hvað er langt síðan ég hef skrifað, allveg búin að gleyma þessari fínu síðu.
Nóg er nú að frétta af okkur Sölva Þór.  Erum flutt í Brekkutanga í Mosó, Sölvi er byrjaður hjá dagmömmu, hún er allveg frábær og honum líður svoo vel þar, sem sagt, hefur gengið eins og í sögu frá því hann byrjaði.
Ég er byrjuð að vinna hjá Landsambandi Hestamannafélaga, og líkar bara vel, en sem komið er:).
Skólinn er á hold í augnablikinu, en það er allveg á hreinu að ég mun klára hann, bara spurning hvenær, það verður fyrr en seinna ætla ég að vona.
Annars líður okkur bara vel, erum mikið hjá ömmu og afa í Kolló, það er svo gott að vera þar:)
Lofa að setja inn myndir fljótlega, annars er ég nú oftar á fésbók þessa dagana en þessari síðu og skelli nú stundum inn myndum þar.

KVeðja Odda og Sölvi Þór
Oddrún Ýr Sigurðardóttir

Júni 2008

20. júní 2008 klukkan 00:30
Jæja, komið þið öll blessuð og sæl, já það er auðvitað löngu komin tími á færslu hjá okkur Sölva Þór.
Sölvi minn er orðinn 1.árs, pælíð í  því, tíminn ekkert smá fljótur að líða:).  Hann er farinn að ganga og gerðist það 3 vikum fyrir afmælið, er svo duglegur þessi elska.
Annars er allt gott að frétta hjá okkur, við erum að flytja í Mosfellsbæ núna í júli, nánar tiltekið í Brekkutanga, síðan er Sölvi búin að fá inn hjá dagmömmu í ágúst, það eina er að ég veit ekki allveg hvað ég ætla að fara gera, en kemur í ljós á næstu dögum, verð auðvitað eitthvað að kenna og dæma,hef svo sem aldrei haft áhyggjur af verkefnaleysiBrosandi.
Við Sölvi erum búin að vera í Kolló nánast allan júni mánuð og unum okkur vel þar, alltaf gott að vera hjá ömmu og afa í sveitinni og Sölvi minn elskar að vera hér, er mikið úti og er mikill dýrakall. 
Við erum á leið á Landsmót hestamanna núna i enda júni og verðum þar í viku, ég er að dæma á mótinu´, mamma, pabbi og nokkrir fylgifiskar ætla að hjálpa mér með Sölva yfir mótið en mamma fékk bústað á Hellu yfir Landsmótshelgina sem er allveg meiriháttar.
Ég tók þá ákvörðun að minnka skólann aðeins, á svo sem ekki mjög mikið eftir en ætla að reyna taka bara áfanga og áfanga í fjarnámi og reyna að vinna mér inn einhverja peninga, því ekki vaxa þeir á trjánum:) og að lifa hér á Íslandi í dag er ansi dýrt.
Jæja ég lofa að skrifa fljótlega og ég ætla að setja inn nokkrar nýjar myndir af prinsinum mínum.

Kv Odda og Sölvi Þór
Oddrún Ýr Sigurðardóttir

Það er komið sumar:)

15. apríl 2008 klukkan 11:46
Jæja góðann daginn.
Alltaf er ég jafn dugleg að skrifa og setja inn myndir hehe, já og Íris mín hér koma nokkrar inn:).
Annars er allt gott hér á bæ.  Er búin að fá dagmömmu í haust og get þá farið að taka skólann alvarlega, ætla samt að reyna við 2 próf í vor.
Ég er á leiðinni norður á Sauðárkrók seinustu helgina í apríl, stórsýningin Tekið til kostanna verður haldin þá og er stefnt á að fara með atriði frá Hvanneyri, þ.e. Reynir Aðalsteins og Co, og co erum Halla,Odda, Reynir, Einar, Gunnar og ég:), verður án efa gaman.  Amma og afi ætla að taka Sölva minn og verður það í fyrsta skipti sem við erum aðskilin, hef aldrei farið frá honum í sólarhring eða meira. Veit samt að hann á eftir að skemmta sér konunglega í sveitinni hjá bestu ömmu og besta afa:).
Hulda Geirs vinkona var hjá okkur um helgina, hún var á dómaranámskeiði og gekk henni svakalega vel,enda ekki við öðru að búast:). Takk fyrir komuna Hulda og þú veist að þú ert alltaf meira en velkomin aftur.
Jæja bið að heilsa í bili og það eru að koma inn nokkrar myndir.
Kvittið endilega þið sem komið á síðuna okkar:) og elsku litli bró til hamingu með afmælið í dag, hann Pési minn er 30.ára.

KV Odda og Sölvi Þór
Oddrún Ýr Sigurðardóttir

Gleðilega páka:)

23. mars 2008 klukkan 11:45
Góðan daginn gott fólk.
Alltaf jafn dugleg að skrifa hér inn eða þannig en hér kemur ein smá færsla:).
Við Sölvi Þór erum búin að vera hjá ömmu og afa í Pétursborg undanfarna daga því þar líður okkur best:).
Erla, Jonni og Guðný Dís eru búin að fá litla prinsessu, allgjör gullmoli og allveg eins og stóra systir.  Við fórum í mat til þeirra um daginn og var það mjög gaman.
Sölvi Þór er annars búin að vera veikur alla páskana, með mikinn hita og kvef, vonandi fer hann nú að lagast litla skottið mitt.
Ég Odda var nánast búin að drepa mig í gær, ákvað að keppa í fjórgangi á Mið Fossum og viti menn, ég missti bæði ístöðin þegar ég var að setja upp á stökk og hún Brella mín hreinlega tók á rás og hljóp, ekki skrítið þegar ístöðin slást í hana hægri vinstri, en kerlingin hefur smá jafnvægi enþá:), ég hreinlega krækti mér bara utan um hana og náði að stoppa hana, sem betur fer, hefði ekki boðið í lengri ferð því þá hefði ég pottþétt fokið af:).
Annars er Æskan og Hesturinn á næsta leiti, þannig að það verður mikil keyrsla í næstu viku.
Lofa að setja myndir inn í næstu viku.
Bless í bili
Odda og Sölvi Þór
Oddrún Ýr Sigurðardóttir

Halló halló

07. mars 2008 klukkan 13:37
Góðan daginn gott fólk og langt síðan síðast:).
Hjá okkur Sölva er allt gott að frétta, erum stödd í Kollafirði núna hjá afa og ömmu. Sölvi Þór er lasinn greyið með hita og hor, vonandi lagast það nú fljótt, það er svo sem ekki að sjá á honum veikindi akúrat í þessum skrifuðu orðum því að hann á fullu í göngugrindinni sinni.:)
Ég er að fara taka þátt í svellköldum kerlingum á morgun laugardag,verður örugglega svaka stuð:).
Pákarnir fara að koma og stefnan hjá okkur Sölva er að slaka á og kannski að fara koma á betri rútínu með svefn:).
Ætla að koma með myndir seinna, er búin að vera frekar löt í þeim efnum.

Kv Odda og Sölvi Þór
Oddrún Ýr Sigurðardóttir

Febrúar og það bara snjóar og snjóar

06. febrúar 2008 klukkan 00:10

Sæl verið þið gott fólk,já ég veit, er allveg glataður bloggari:).
Hér er allt gott að frétta, við Sölvi erum alltaf á þeytingi milli Rvíkur og Hvanneyris.  Ég er að kenna einu sinni í viku hjá Andvara og þá er Sölvi minn hjá afa sínum og ömmu, hann elskar að vera hja þeim, síðan er ég allltaf á einhverjum fundum í bænum og vitir menn, tók en eitt verkefnið að mér, verð sýningarstjóri á stórsýningunni Æskan og hesturinn sem haldin verður í lok mars:).
Er að taka 2 áfanga í skólanum, eins er ég í kennslu 1 sinni í viku hjá Reyni Aðalsteins, það er hreint allveg frábært.
Björk, Bái og Hekla hafa verið svo dugleg að hjálpa okkur og passað hann Sölva minn þegar mamman þarf að fara í hesthúsið, auk þess hafa Sigurður Darri frændi og Pétur bróðir verið afar hjálplegir, takk takk mitt elskulega fólk, veit ekki hvar ég væri án ykkar, sérstaklega mamma og pabbi, þið eruð ómetanleg:).
Jæja kveð að sinni og Sölvi Þór biður að heilsa.

Nokkrar nýjar skemmtimyndir af Sölva eru komnar´inn á myndasíðuna.

PS muna að kvitta í gestabókina

Oddrún Ýr Sigurðardóttir

Gleðilegt nýtt ár

05. janúar 2008 klukkan 23:24
Það er komin tími á blogg:).
Já nú er komið nýtt ár og margs að minnast á síðastliðnu ári.
Eignaðist hann Sölva Þór minn, það er án efa það besta sem hent hefur mig í þessu lífi, já yndislegt að eiga svona heilbrigt og fallegt barn:).
Annars fóru jól og áramót bara vel í okkur Sölva, borðuðum mikið og fengum allt of mikið af gjöfum:).
Á morgun erum við að fara heim á Hvanneyr og alvaran tekur við.  Ég ætla að taka skólann með truki og auðvitað fylgir kennslan þar á eftir.
Brella ætlar að koma með okkur vestur á morgun en hennar heimili í vetur verða Miðfossar og ætlum við vinkonur að vera duglegar að þjálfa hvor aðra, ekki veitir af hehe:).
Smelli nokkrum myndum inn frá dvöl okkar heima í Pétursborg.

Kv Odda og Sölvi Þór

Ps Sölvi er komin með tvær tönnslur:)
Oddrún Ýr Sigurðardóttir

Jólin eru að koma:)

19. desember 2007 klukkan 21:54
Jæja alltaf jafn dugleg að bloggaSkömmustulegur.
Annars er þetta að frétta:
Búin að taka prófið og gékk það ágætlega held ég, Sölvi Þór fór í heimsókn til Rósu og Helga á Miðfossum á meðan mamman var í prófinu.
Loksins, loksins, það er komin tönn, fann hana í gær og býst við fleirum næstu daga,flottur strákur hann Sölvi minn:).
Erum aðkomast í jólaskapið, amma og afi koma á morgun og ætla að taka eitthvað af okkar dóti með sér heim í Pétursborg því það kemst ekki allt í bílinn hjá okkur, ekkert smá mikið af dóti sem fylgir einum prins.
Stefnum á að koma í bæinn á morgun og ætlum að nota helgina í jólagjafakaup og síðan er hið árlega humarsúpu partý hjá Erlu og Jonna á ´Þorláksmessu, alltaf gaman að fara þangað, góð súpa og mikið af skemmtilegu fólki.
Ætla að setja inn nokkrar myndir af prinsinum.
Með jólakveðju

Odda og Sölvi Þór
Oddrún Ýr Sigurðardóttir

Desember

06. desember 2007 klukkan 22:56
Jæja gott fólk, við afsökum hvað við höfum verið löt að skrifa:).
Hér er allt gott að frétta, jólaskapið er á leiðinni og okkur hlakkar mikið til jólanna.
Sölvi Þór dafnar mjög vel, verður 6. mánaða núna 13.des, vá hvað tíminn er fljótur að líða, svo stutt síðan að hann var nýfæddur í fanginu á mömmu sinni.
Ég ákvað að opna síðuna okkar aftur, heyrði af fólki sem var að stelast í að afrita myndir af síðunni sem ég er ekkert voðalega hrifin af, finnst lágmark að fá leyfi til þess. Jæja nóg um það, þeir taka það til sín sem eigaÓákveðinn.
Jæja við tökum eitt próf núna 19.des, erum reyndar ekkert byrjuð að læra undir það en erum fullviss um að það gangi vel.
Erum búin að fara í einn sundtíma, gékk það þvílíkt vel, erum alltaf á leiðinni aftur en húsmóðirinn á heimilinu er alltaf á fullu í einhverju öðru. 
Vitum ekki allveg hvernig þetta verður eftir áramót, þ.e. hvað við tökum mörg fög í skólanum, en allavega ætlum við að kenna eitthvað, skrifa kannski einhverjar greinar í Eiðfaxa og vinna dag og dag í Knapanum sem er hestabúð í Borganesi.
Jæja, við lofum að skrifa fljótt aftur.
Eru komnar nokkrar nýjar myndir á myndasíðuna.
KV Odda og Sölvi Þór
Oddrún Ýr Sigurðardóttir

Haust á Hvanneyri

06. nóvember 2007 klukkan 14:16
Komið þið sæl öll sömul, já það líður alltaf svolítið á milli skrifa hjá okkur:).
Við erum komin heim á Hvanneyri og Odda er að rembast við eitt fag í skólanum núna, það gengur vonandi bara vel. Sölvi Þór dafnar sko vel, bara stækkar og stækkar og viti menn það er búið að skíra gæjann, gékk það vel, það var gert  sunnudaginn 4.nóv í Brautarholtskirkju af séra Gunnari Kristjánsyni prest á Reynivöllum í Kjós, afi hélt á mér undir skírn og Þóra frænka og Pétur frændi voru skírnarvottar. Héldum síðan smá veislu heima í Pétursborg og vil ég þakka ömmu, afa, Þóru frænku og öllum þeim sem hjálpuðu til við undirbúning og sjálfa veisluna:) hefði aldrei getað gert þetta á ykkar elskurnar mínar, við eigum bestu fjölskyldu í heimi kiss kiss.:).
Sölvi fékk svo margt fallegt í skírnargjöf, hann fékk 3 krossa alla mjög fallega, annað hálsmenn sem var líka mjög fallegt með svona barnaskóm á,armband með nafninu sínu á, hjólakerru, pening sem hann leggur inn á framtíðarreikninginn sinn, föt, matarstel svo eitthvað sé nefnt.
Takk takk allir þeir sem tóku þátt í þessum deigi með okkur, við erum svo rík af yndislegu fólki allt í kringum okkur.
Jæja um næstu helgi ætlar Þóra frænka og stelpurnar að passa Sölva sæta, mamman er nefnilega á leið á uppskeruhátið hestamanna, veit það verður erfitt að fara frá honum í þennan tíma en við höfum held ég bara bæði gott af því:) síðan eru frænkur mínar svo skemmtilegar að ég veit það verður svo gaman.
Nóg í bili, ætla að setja inn nokkrar myndir núna en set fleiri úr skrírninni seinna.

Odda og Sölvi Þór.
PS muna að kvitta:)
Oddrún Ýr Sigurðardóttir

Prófíll

  • Nafn: Oddrún Ýr Sigurðardóttir
  • Staður: Mosó
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: LH og reiðkennari
  • Hjúskaparstaða: einhleyp
  • Um mig: Á yndislegan gullmola sem heitir Sölvi Þór

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...