Það er komið sumar:)
15. apríl 2008 klukkan 11:46
Jæja góðann daginn.
Alltaf er ég jafn dugleg að skrifa og setja inn myndir hehe, já og Íris mín hér koma nokkrar inn:).
Annars er allt gott hér á bæ. Er búin að fá dagmömmu í haust og get þá farið að taka skólann alvarlega, ætla samt að reyna við 2 próf í vor.
Ég er á leiðinni norður á Sauðárkrók seinustu helgina í apríl, stórsýningin Tekið til kostanna verður haldin þá og er stefnt á að fara með atriði frá Hvanneyri, þ.e. Reynir Aðalsteins og Co, og co erum Halla,Odda, Reynir, Einar, Gunnar og ég:), verður án efa gaman. Amma og afi ætla að taka Sölva minn og verður það í fyrsta skipti sem við erum aðskilin, hef aldrei farið frá honum í sólarhring eða meira. Veit samt að hann á eftir að skemmta sér konunglega í sveitinni hjá bestu ömmu og besta afa:).
Hulda Geirs vinkona var hjá okkur um helgina, hún var á dómaranámskeiði og gekk henni svakalega vel,enda ekki við öðru að búast:). Takk fyrir komuna Hulda og þú veist að þú ert alltaf meira en velkomin aftur.
Jæja bið að heilsa í bili og það eru að koma inn nokkrar myndir.
Kvittið endilega þið sem komið á síðuna okkar:) og elsku litli bró til hamingu með afmælið í dag, hann Pési minn er 30.ára.
KV Odda og Sölvi Þór

Oddrún Ýr Sigurðardóttir

Skemmtu þér svo vel fyrir norðan, drekktu einn kaldan fyrir mig á milli sýninga! Kandidatarnir biðja að heilsa,
Stórt knús,
HGG