Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Atburðarteljari

Júni 2008

20. júní 2008 klukkan 00:30
Jæja, komið þið öll blessuð og sæl, já það er auðvitað löngu komin tími á færslu hjá okkur Sölva Þór.
Sölvi minn er orðinn 1.árs, pælíð í  því, tíminn ekkert smá fljótur að líða:).  Hann er farinn að ganga og gerðist það 3 vikum fyrir afmælið, er svo duglegur þessi elska.
Annars er allt gott að frétta hjá okkur, við erum að flytja í Mosfellsbæ núna í júli, nánar tiltekið í Brekkutanga, síðan er Sölvi búin að fá inn hjá dagmömmu í ágúst, það eina er að ég veit ekki allveg hvað ég ætla að fara gera, en kemur í ljós á næstu dögum, verð auðvitað eitthvað að kenna og dæma,hef svo sem aldrei haft áhyggjur af verkefnaleysiBrosandi.
Við Sölvi erum búin að vera í Kolló nánast allan júni mánuð og unum okkur vel þar, alltaf gott að vera hjá ömmu og afa í sveitinni og Sölvi minn elskar að vera hér, er mikið úti og er mikill dýrakall. 
Við erum á leið á Landsmót hestamanna núna i enda júni og verðum þar í viku, ég er að dæma á mótinu´, mamma, pabbi og nokkrir fylgifiskar ætla að hjálpa mér með Sölva yfir mótið en mamma fékk bústað á Hellu yfir Landsmótshelgina sem er allveg meiriháttar.
Ég tók þá ákvörðun að minnka skólann aðeins, á svo sem ekki mjög mikið eftir en ætla að reyna taka bara áfanga og áfanga í fjarnámi og reyna að vinna mér inn einhverja peninga, því ekki vaxa þeir á trjánum:) og að lifa hér á Íslandi í dag er ansi dýrt.
Jæja ég lofa að skrifa fljótlega og ég ætla að setja inn nokkrar nýjar myndir af prinsinum mínum.

Kv Odda og Sölvi Þór
Oddrún Ýr Sigurðardóttir
Ragnhildur Sævarsdóttir skrifar ...
 
Sæl Odda.
Þið bara að flytja.. við hittumst kannski á Landsmóti, langar svo en er að spá í hvort maður fer með svona lítil krakkadýr með sér eins og hann Kára minn.
Heyrumst og sjáumst vinana
24. júní 2008 klukkan 20:50
Sirrý skrifar ...
 
Var að sjá bloggið þitt. Veður að vera dugleg að blogga í vetur víst maður hittir þig ekki í hesthúsinu reglulega. Vona að ég sjái þig sem fyrst og gangi þér vel fyrir sunnan.
14. ágúst 2008 klukkan 14:10
Sirrý skrifar ...
 
Ég sé að nafnið mitt sést ekki. En þetta var ég
Kv. Sirrý
14. ágúst 2008 klukkan 14:12
Odda skrifar ...
 
já Sirrý mín ég skal lofa vera duglegri að skrifa hér.)

Kv Odda
15. ágúst 2008 klukkan 10:34

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Oddrún Ýr Sigurðardóttir
  • Staður: Mosó
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: LH og reiðkennari
  • Hjúskaparstaða: einhleyp
  • Um mig: Á yndislegan gullmola sem heitir Sölvi Þór

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...